Amina S - með áfastri snúru (1.990 kr. á mán)

 

Einföld hleðsla – ekkert vesen

Amina S hleðslustöðin býður upp á einfalda og þægilega hleðslu fyrir rafbílinn þinn. Stöðin kemur með áföstum Type 2 hleðslukapli og er tilbúin í notkun – þú tengir og hleður.

Meira afl - meira stuð

Amina S er hleðslustöð sem getur skilað allt að 22 kW hleðsluafli.

  • Tengd við 32A á einum fasa: allt að 7,4 kW

  • Tengd við 32A á þremur fösum: allt að 22 kW

Þú færð einfaldlega meira afl þegar aðstæður leyfa – allt að þrefaldan hleðsluhraða.

Aflstýring eftir þínum þörfum

Þú getur stillt afl hleðslustöðvarinnar frá 6A upp í 32A, eftir rafkerfi og notkun.

Uppsetning

Uppsetning er einföld í framkvæmd, en þarf að vera unnin af löggiltum rafvirkja.

Viðskiptavinir Orkusölunnar sem leigja hleðslustöð geta fengið uppsetningu á föstu verði.

Almennar upplýsingar

  • Mál: 264 × 112 × 89 mm

  • Þyngd: 3,6 kg (með hleðslukapli)

  • Vatnsvörn: IP54 (þolir rigningu, rok og snjó)

  • Höggvörn:IK08

  • Litur:svartur

  • Læsing: engin

  • Hleðslukapall: fylgir (Type 2)

Tengimöguleikar

Amina S leggur áherslu á einfaldleika:

  • WiFi: Nei

  • eSIM (4G): Nei

  • RFID-lesari:Nei

  • App:Nei

Hér er fókusinn á það sem skiptir máli: áreiðanleg og einföld hleðsla.

Hleðslugeta

Amina S styður bæði einfasa og þrífasa rafmagn:

  • Afl: 6–32A

  • Hleðsluhraði:

    • 7,4 kW (einn fasi, 32A)

    • 22 kW (þrír fasar, 32A)

  • Tengi: Type 2

Gerð fyrir íslenskar aðstæður

Amina S er hönnuð til að takast á við allar árstíðir – frost, rigningu og rok – þar sem hitastig getur sveiflast frá -30°C upp í +40°C.

Hleðslustöðvar Orkusölunnar eru í boði fyrir viðskiptavini gegn vægu mánaðargjaldi. Ekki er hægt að kaupa stöðvarnar gegn staðgreiðslu, en með áskrift greiðir þú lægri kostnað í upphafi miðað við að kaupa þína eigin hleðslustöð.

Kosturinn er einnig sá að Orkusalan annast allan rekstur hleðslustöðvarinnar, viðgerðir, útskipti og viðhald vegna eðlilegrar notkunar.

Smelltu hér til að lesa þér til um Hleðslustuð og hvað í áskriftinni felst.

Þegar þú klárar pöntunarferlið geturðu valið afhendingarmáta sem hentar þér best:

  • fáðu vöruna senda heim til þín, eða
  • náðu í hana til okkar í Urðarhvarf 8B í Kópavogi.

Við bjóðum upp á fast verð fyrir uppsetningu á hleðslustöð sem leigð er hjá Orkusölunni og sett er upp á Akureyri eða innan stórhöfuðborgarsvæðisins.


Þú getur pantað uppsetningu fyrir hleðslustöð föstu verði og greitt fyrir með korti eða skipt kostnaðinum með Pei í allt að 36 mánuði.