Viðskiptavinir Orkusölunnar geta fengið hleðslustöðvar í áskrift á frábæru verði!
Ef þú ert ekki nú þegar í rafmagnsviðskiptum hjá Orkusölunni, færðu í kjölfar pöntunarinnar tölvupóst frá okkur með samning til rafrænnar undirritunar.
Við bjóðum upp á fast verð fyrir uppsetningu á hleðslustöð sem leigð er hjá Orkusölunni og sett er upp innan stórhöfuðborgarsvæðisins og á völdum stöðum utan þess (Akureyri, Blönduósi, Hvammstanga og Sauðárkróki). Á næstunni verður boðið upp á þessa þjónustu víðar um land.
Ef þú pantar uppsetningu samhliða leigu á hleðslustöð getur þú greitt fyrir með korti eða skipt kostnaðinum með Pei í allt að 36 mánuði.
Hér getur þú lesið allt sem máli skiptir varðandi uppsetningu á hleðslustöð.