Easee Charge (3.410 kr./mán.)

Hleðslustöð fyrir lengra komna

Easee Charge-hleðslustöðin er fyrir þá sem kjósa vöru í hæsta gæðaflokki þar sem ekkert er slegið af hvað varðar öryggi og einfalda notkun þrátt fyrir að vera tæknilega fullkomnasta stöðin sem við bjóðum upp á. Easee Charge hlaut einnig hin virtu Red Dot-hönnunarverðlaun árið 2021 fyrir framúrskarandi vöruhönnun.

Sé Easee Charge sett upp við bestu aðstæður: þriggja fasa rafmagn og 32A-öryggi, getur hún skilað allt að 22kW hleðsluhraða. Hún virkar að sjálfsögðu líka á einum fasa og getur þá gefið af sér 7,4kW (á 32A-öryggi), sem nægir til að hlaða flesta bíla að fullu ef hlaðið er yfir nótt.

Fullkomin stjórn á hleðslu og aðgangi

Þessi hleðslustöð hefur allt að bjóða: þú getur tengst henni með Easee-appinu í snjallsíma (Android og iOS) þar sem meðal annars er hægt að:

  • Sjá stöðu á hleðslu sem er í gangi.
  • Hefja og ljúka hleðslulotu.
  • Stýra hleðsluaflinu.
  • Tímastilla hleðslulotur.
  • Stjórna aðgangi að hleðslustöð.

Einnig er hægt að nota appið til að læsa hleðslukapli í stöðvartenginu svo þú getir geymt hann á staðnum og óprúttnir aðilar geti ekki haft hann með sér á brott á meðan þú ert í burtu.

Rétt eins og í Qudo-hleðslustöðinni er hægt að læsa aðgangi að Easee-stöðinni þannig að nota þurfi RFID-lykil (svipaðir bensínstöðvalyklum) til þess að virkja stöðina og hlaða. Munurinn er sá að Qudo-stöðvunum fylgja tveir lyklar frá framleiðanda, en Easee-stöðin býður þér upp á að skrá þína eigin RFID-lykla, eins marga og þú þarft á að halda.

Samtengdar hleðslustöðvar (álagsstýring)

Séu margar hleðslustöðvar settar upp á sömu grein og allar hlaða bíla samtímis, geta vandamálin gert vart við sig – nema þær séu með innbyggðri álagsstýringu eins og Easee Charge!

Hægt er að tengja saman allt að þrjár Easee Charge-stöðvar og með þráðlausum samskiptum geta þær stýrt álagsdreifingunni sín á milli svo allir bílar fái hleðslu án þess að ofgera rafmagnstengingunni sem til staðar er.

Tenging við miðlægt umsjónarkerfi

Allar Easee-stöðvar sem Orkusalan leigir eru skráðar í miðlægt umsjónarkerfi fyrir afhendingu. Þar getur starfsfólk Orkusölunnar séð allar nauðsynlegar upplýsingar um hleðslustöðina og hegðun hennar: hvort eitthvað bjátar á, hvenær stöðin gerði síðast vart við sig gegnum nettengingu, síðustu aðgerðir og hleðslulotur og jafnvel endurræst stöð ef þörf krefur.

Easee Charge-stöðvarnar eru að þessu leyti til besti kosturinn þegar kemur að því að setja upp hleðslustöðvar í fjölbýli. Orkusalan mun á næstunni bjóða upp á slíka þjónustu fyrir fjölbýli og húsfélög, en að svo stöddu er hægt að skrá sig á biðlista fyrir ráðgjöf og uppsetningu hleðslustöðva í fjölbýli og hjá fyrirtækjum.

Að lokum ber að nefna að innbyggt eSIM veitir Easee-stöðinni ókeypis 4G-nettengingu um ókomna tíð, sem m.a. tryggir reglulegar og sjálfvirkar uppfærslur á stýrikerfi hennar sem gerir framleiðandanum kleift að þróa á nýjungar í appi án þess að þú þurfir að gera nokkuð. Þessi nettenging gerir þér einnig kleift að ná sambandi við stöðina þína í gegnum Easee-appið, hvar og hvenær sem er.

Almennar upplýsingar

Easee Charge er 256mm á hæð, 193mm á breidd og 106mm djúp.

  • Þyngd: 1,5 kíló.
  • Vatnsvörn: IP54 (hentar til nota utanhúss og þolir vel rigningu, rok og snjó).
  • Höggvörn: IK10.
  • Litur: Svört.
  • Læsing: hægt er að læsa stöðinni svo aðeins sé hægt að hefja hleðslu með notkun RFID-lykla (hægt er að tengja eigin lykla við stöðina).
  • Hleðslukapall: fylgir ekki.

Tengimöguleikar

  • WiFi-tenging: Já, WiFi 2.4GHz (b/g/n).
  • eSIM (4G): Já, innbyggt eSIM gerir hleðslustöðinni kleift að hafa stöðugt samband við umheiminn (app og miðlægt stjórnkerfi).
  • RFID-lesari: Já, og hægt er að tengja eigin RFID-lykla.
  • App fyrir snjallsíma: Já, Easee-appið fæst fyrir bæði Android og iOS og tengir þig beint við hleðslustöðina þína.

Hleðslugeta

Easee Charge getur hlaðið á hvoru sem er: eins eða þriggja fasa rafmagni.

  • Afl: 6-32A.
  • Hleðsluhraði: 7,4 kW á einum fasa (32A) en 22kW á þremur fösum (32A).
  • Hleðslutengi: Type 2-tengi.

Easee-hleðslustöðina má nota bæði innanhúss sem utan allt ári um kring og virkar vandræðalaust þó hitinn sveiflist úr -30°C upp í +50°C.

Hleðslustöðvar Orkusölunnar eru í boði fyrir viðskiptavini gegn vægu mánaðargjaldi. Ekki er hægt að kaupa stöðvarnar gegn staðgreiðslu, en með áskrift greiðir þú lægri kostnað í upphafi miðað við að kaupa þína eigin hleðslustöð.

Kosturinn er einnig sá að Orkusalan annast allan rekstur hleðslustöðvarinnar, viðgerðir, útskipti og viðhald vegna eðlilegrar notkunar.

Smelltu hér til að lesa þér til um Hleðslustuð og hvað í áskriftinni felst.

Þegar þú klárar pöntunarferlið geturðu valið afhendingarmáta sem hentar þér best:

  • fáðu vöruna senda heim til þín, eða
  • náðu í hana til okkar í Urðarhvarf 8B í Kópavogi.

Við bjóðum upp á fast verð fyrir uppsetningu á hleðslustöð sem leigð er hjá Orkusölunni og sett er upp á Akureyri eða innan stórhöfuðborgarsvæðisins.


Þú getur pantað uppsetningu fyrir hleðslustöð föstu verði og greitt fyrir með korti eða skipt kostnaðinum með Pei í allt að 36 mánuði.